flugfréttir

Eina virka A340-500 breiðþotan í heiminum flýgur á ný

- Azerbaijan Airlines byrjar að fljúga fyrrum langdrægustu breiðþotu heims

4. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 14:45

Airbus A340-500 þota frá Azerbaijan Airlines

Eina Airbus A340-500 þotan sem hefur verið í áætlunarflugi er aftur farin að fljúga á ný en þessi undirtegund af Airbus A340 þotunni er gott sem alveg horfin úr háloftunum.

Það er flugfélagið Azerbaijan Airlines sem er farið að fljúga þotunni aftur en félagið hefur haft eina slíka þotu í flotanum sem flaug á milli Baku og Moskvu í fyrra auk þess sem þotan var notuð í flugi til tyrknesku borgarinnar Bodrum.

Azerbaijan Airlines kyrrsetti A340-500 þoturnar sínar tvær í september í fyrra en byrjaði að fljúga þotunum á ný þann 28. desember sl. á milli Baku og Dubai en óvíst er þó hversu lengi félagið mun nota þoturnar.

Alls voru 32 þotur framleiddar hjá Airbus af gerðinni A340-500 en sú fyrsta var afhent árið 2004 til Emirates sem notaði þotuna í flugi á mjög löngum flugleiðum en þotan hefur flugdrægi upp á tæpa 17.000 kílómetra og var á sínum tíma langdrægasta breiðþota heims.

Þar af leiðandi var þotan notuð fyrir lengsta áætlunarflug heims sem var flogið af Singapore Airlines sem notaði A340-500 í flugið á milli Singapore og Newark í Bandaríkjunum.

Meðal flugfélaga sem höfðu Airbus A340-500 í flota sínum voru Air Canada, Arik Air, Emirates, Etihad Airways, Singapore Airlines, TAM Airlines og portúgalska flugvélaleigan Hi Fly.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga