flugfréttir

Ryanair hættir að fljúga um Frankfurt

8. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 19:08

Boeing 737-800 þota Ryanair á flugvellinum í Dublin

Ryanair segir að félagið hafi tekið ákvörðun um að pakka saman og hætta að fljúga um flugvöllinn í Frankfurt í Þýskalandi.

Ástæðan er sögð vera þar sem flugvallargjöld hafa hækkað það mikið að ekki er lengur arðbært að fljúga um Frankfurt-flugvöll og ætlar félagið að færa fimm flugvélar, sem hafa verið staðsettar í Frankfurt, til annarra flugvalla í leiðarkerfinu.

Ryanair sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kemur að hagstæður rekstur og samkeppnishæf flugvallargjöld sé lykilatriðið á þessum tímum þar sem flugfélög berjast við að koma sér út úr heimsfaraldrinum.

„Í stað þess að aðlaga sig að því að stuðla að vexti í fluginu þá hefur Frankfurt-flugvöllur ákveðið að fæla í burtu flugfélög með tilheyrandi fækkun starfa með því að hækka gjöldin“, segir í yfirlýsingu en Ryanair mun hætt að fljúga um Frankfurt frá og með 31. mars næstkomandi.

Þrátt fyrir þetta þá stefnir Ryanair á áframhaldandi útrás í Evrópu fyrir sumarið 2022 með tilkomu afhendinga á 65 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 200 og kemur fram að fjölmargir flugvellir séu tilbúnir að taka við áætlunarflugferðum frá Ryanair.

Talsmaður Frankfurt-flugvallar segist harma ákvörðun Ryanair en tekur fram að hækkunin sé svipuð og verið hefur sl. ár og sé um 4.3% hækkun að ræða á flugvallargjöldum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga