flugfréttir

Einhver ár í að flug um Heathrow verði með eðlilegum hætti

11. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 20:22

Frá Heathrow-flugvellinum í London

John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins í London, varar við því að það gæti tekið einhver ár þangað til að flugumferð um flugvöllinn verður aftur orðin með eðlilegum hætti líkt og hún var fyrir heimsfaraldurinn.

Aðeins voru 19.4 milljónir farþega sem fóru um Heathrow-flugvöll árið 2021 en undanfarin ár hafa tæpla 80 milljónir manns farið um þennan flugvöll árlega sem er einn sá stærsti í heimi er kemur að farþegafjölda og fjölda flugtaka og lendinga.

Þetta þýðir að farþegafjöldinn í fyrra var aðeins fjórðungur af þeim fjölda sem flaug um Heathrow-flugvöll árið 2019 og hefur sú tala ekki verið jafn lág í meira hálfa öld.

Í fréttum BBC kemur fram að um 600.000 farþegar höfðu hætt við að fljúga um Heathrow í desember vegna útbreiðslu Ómíkrón-afbrigðisins og er ekki ólíklegt að fleiri farþegar eiga eftir að hætta við ferðaáform sín á næstu vikum og mánuðum.

„Eins og staðan er í dag eru ferðatakmarkanir á öllum flugleiðum frá Heathrow ásamt prófunum. Flugiðnaðurinn mun ekki ná fullum bata fyrr en búið er að afhenma allar þessar takmarkanir og aðgerðir og öruggt er að þær verða ekki teknar upp að nýju með skömmum fyrirvara sem er eitthvað sem er sennilega ekki að fara að gerast fyrr en eftir einhver ár“, segir Holland-Kaye.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga