flugfréttir

Fyrsta A319 þotan í nýju litum ITA Airways

13. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:52

Fyrsta Airbus A319 þotan í nýju litum ITA Airways

Nýja ítalska flugfélagið ITA (Italia Trasporti Aereo), einnig þekkt sem ITA Airways, hefur birt myndir af fyrstu Airbus A319 þotunni sem hefur verið máluð í nýju litum félagsins.

Þetta er önnur þota ITA Airways sem máluð hefur verið en flugfélagið birti þann 23. desember sl. fyrstu myndirnar af fyrstu þotunni í flotanum sem hafði verið máluð í litunum sem er af gerðinni Airbus A320.

ITA Airways var stofnað þann 11. nóvember árið 2020 og tók flugfélagið við af rekstri Alitalia sem hætti starfsemi sinni í október sl. en daginn eftir, þann 15. október, flaug ITA sitt fyrsta áætlunarflug.

Airbus A319 þotan hefur fengið nafnið Pietro Mennea í höfuðið á Ólympíuspretthlauparanum ítalska sem var bæði heimsmeistari í spretthlaupi og Evrópumeistari.

Þotan, sem ber skráninguna EI-IMN, mun fljúga sitt fyrsta áætlunarflug á morgun en þotan var áður í flota Alitalia og hefur ITA Airways 18 slíkar þotur í flotanum sem telur 52 þotur sem allar eru af Airbus-gerð.

Allar þær þotur sem eru í flota félagsins sem málaðar verða á næstunni verða skírðar í höfuðið á þeim ítölsku íþróttarmönnum sem skarað hafa fram úr í þeirri grein sem þeir kepptu í og geta áhugasamir sent inn tillögur af íþróttamönnum og velur flugfélagið tillögur af nöfnum afreksmanna í íþróttum sem notuð verða á flugvélarnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga