flugfréttir
FAA: Helmingur flugferða öruggar í bili gagnvart 5G
Fram hefur komið að tíðni á 5G sendum sé of nálæg þeirri tíðni sem ratsjárshæðarmælar nota
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa lýst því yfir að búið sé að ganga úr skugga um að nær helmingur þeirra flugvéla sem fljúga áætlunarflug í Bandaríkjunum séu öruggar gagnvart 5G fjarskiptatíðninni og eigi 45% af þeim ekki af stafa ógn af slíkum sendum.
Þessi yfirlýsing var gefin út í gær og kemur fram að búið sé að tryggja öryggi á 48 af þeim 88 flugvöllum
sem taldir voru að gætu orðið fyrir áhrifum af nálægð við 5G senda en fjarskiptafyrirtækin AT&T og Verizon
hafa samþykkt að koma upp sérstöku öryggissvæði á 5G dreifikerfinu við nálægð flugvalla í að minnsta kosti
6 mánuði.
Fram hefur komið að tíðni á 5G sendum sé of nálæg þeirri tíðni sem ratsjárshæðarmælar nota
en slíkir mælar eru notaðir á flugvélum til þess að gefa upp nákvæma flughæð yfir jörðu og spila stórt
hlutverk í blindaðflugi.
Þrátt fyrir þetta þá hafa mörg bandarísk flugfélög og fraktflugfélög sínar efasemdir og telja að vandamálið
sé langt frá því að vera úr sögunni.
„Þótt að komið sé samþykki frá FAA þá munu bandarísk flugfélög ekki geta starfrækt fjölda flugferða
vegna takmarkanna þar sem verið er að gera prófanir fram til 19. janúar sem er sá dagur sem á að taka
5G kerfið í notkun“, segir í yfirlýsingu samtakanna Airlines 4 America.
Þann 14. janúar sl. gaf FAA út tilmæli þar sem þeir flugrekendur, sem hafa Boeing 787 í flota sínum, voru beðnir um að sýna
sérstaka aðgát er kemur að lendingum á blautum flugbrautum á flugvöllum sem eru nálægt 5G fjarskiptasendum.
Á meðan vinnur FAA hörðum höndum að því að afla upplýsinga með nákvæmum hætti varðandi hvernig
5G er að hafa áhrif á mismunandi tegundir af ratsjárshæðarmælum í flugvélum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.