flugfréttir

Vilja breyta IATA-kóðanum GAY fyrir flugvöllinn í Gaya

- Alþjóðasamtök flugfélaganna segja að allir IATA kóðar séu varanlegir

8. febrúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:51

IATA-kóðinn

Flokkur innan indverska þingsins fer fram á að einkennisstöfunum fyrir Gaya-flugvöllinn á Indlandi, sem einnig er þekktur sem Bodhgaya-flugvöllur, verði breytt sem fyrst.

„Kóðinn GAY er bæði móðgandi, skammarlegt og óviðeigandi og skorum við á stjórnvöld að breyta þessu“, sagði þingmaður á indverska þinginu þegar málið var tekið fyrir sl. föstudag.

Fyrst var farið fram á umrædda breytingu í janúar 2021 en breytingar á kóðanum þarf að bera undir Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) og hefur indverska þingið stungið upp á að snúa kóðanum öfugt og breyta honum í YAG.

Þar sem að Gaya er heilög borg er óttast að þetta eigi eftir að móðga íbúa borgarinnar og einnig fleiri Indverja á svæðinu og er farið fram á að bæði ríkisstjórnin og ríkisflugfélagið Air India ræði saman um aðgerðir til þess að fá þessu breytt sem fyrst.

Flugmálaráðuneyti Indlands hafði áður sent erindi til Alþjóðasamtaka flugfélaganna og fengið þau svör að IATA-kóðar séu varanlegir eftir að búið er að skrá þá og er ekki hægt að breyta þeim nema ítrasta nauðsyn ber undir og verði ástæðan að varða flugöryggi eða rugling.

Flokkur innan indverska þingsins er ekki ánægður með þessi viðbrögð frá IATA og er óskað eftir því að ríkisstjórnin haldi áfram að þrýsta á samtökin varðandi breytingar.

IATA gefur út tveggja bókstafa einkennisstafi fyrir flugfélög og þriggja stafa einkennisstafi fyrir flugvelli en Alþjóðaflugmálastofnunin gefur út fjögurra stafa einkennisstafi fyrir flugvelli og er VEGY til að mynda ICAO kóðinn fyrir Gaya.

Kóðinn er til þess að auðvelda auðkenni á flugvelli í rafrænu kerfi og kemur kóðinn fram á upplýsingaskjám, í bókunarkerfi, á flugfarmiða og hjá flugmönnum en yfirleitt nota áhafnir ICAO-kóðann sem er til að mynda sleginn inn sem brottfararflugvöllur eða komuflugvöllur í flugtölvu fyrir brottför um borð í stjórnklefa flugvéla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga