flugfréttir
Kanadískt fyrirtæki valið fyrir framkvæmdir á nýjum flugvelli á Grænlandi
- Nýr flugvöllur í Qaqortoq verður tekinn í notkun árið 2025
Tölvuteikning að nýja flugvellinum í Qaqortoq
Flugvallarfyrirtækið Kalaallit Airports, sem sér um rekstur á grænlenskum flugvöllum og vinnur að framkvæmdum á þremur nýjum flugvöllum á Grænlandi, hefur gert samning við fyrirtæki í Kanada sem mun koma að framvæmdum á nýrri flugbraut á flugvellinum í Qaqortoq.
Enginn flugvöllur er staðsettur í bænum Qaqortoq og hefur aðeins verið hægt að fljúga
til bæjarins á þyrlu sem hefur þyrlupall en næsti flugvöllur er í Narsarsuaq sem er í
60 kílómetra fjarlægð til norðausturs.
Það er kanadíska fyrirtækið Pennecon Heavy Civil sem hefur verið valið
til að sinna verkefninu og er um að ræða flugbraut sem verður 1.500
metra löng og 30 metrar á breidd.
Framkvæmdir á flugbrautinni hefjast í vor en fyrirtækið mun einnig
sjá um framkvæmdir á stæðum og athafnasvæðinu í kringum flugstöðina
sem mun rísa á flugvellinum auk bílastæða og framkvæmdir við vegi
til og frá flugvellinum.
Verkið felur einnig í sér að sprengja í burtu um 2 milljónir rúmmetra
af grjóti frá klettum til að gera pláss fyrir flugvöllinn og mun verkið
taka um þrjú ár þar sem gert er ráð fyrir að hægt verði að taka flugvöllinn
í notkun árið 2025.
Jens Lauridsen, framkvæmdarstjóri Kalaallit Airports, segir að
Pennecon Heavy Civil hafi orðið fyrir valinu þar sem fyrirtækið hefur
mikla reynslu í að taka að sér framkvæmdir í mjög köldu og erfiðu veðri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.