flugfréttir

Fyrsti fraktflugvöllurinn í Kína opnar á þessu ári

21. mars 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:41

Boeing 757 fraktþota frá flugfélaginu SF Airlines á Ezhou Huahu flugvellinum í Kína

Flugprófunum á fyrsta fraktflugvellinum í Kína er lokið en Ezhou Huahu flugvöllurinn verður fyrsti flugvöllurinn í Kína sem eingöngu verður nýttur sem fraktflugvöllur og stendur til að taka hann í notkun síðar á þessu ári.

Prófanir fóru fram með fraktflug með einni af Boeing 757-200F þotum flugfélagsins SF Airlines og lenti þotan sl. laugardag á flugvellinum eftir stutt flug frá Wuhan.

Flugvöllurinn er um 700.000 fermetrar að stærð og kemur með stæðum fyrir 124 fraktflugvélar Fram kemur að stefnan sé að Ezhou Huahu flugvöllur muni einnig taka á móti farþegaflugvélum innan fárra ára til þess að létta af flugumferðina um flugvöllinn í Wuhan.

Til stendur að taka í notkun 15.000 fermetra flugstöð og árið 2025 er séð fram á að um 1 milljón farþega geti farið um flugvöllinn og 2.5 milljón tonn af frakt.

Framkvæmdir við Ezhou Huahu flugvöllinn hófust árið 2017 en ákveðið var að hrinda honum í framkvæmd vegna gríðarlegrar aukningar sem orðið hefur í netverslun auk þess sem framboð eftir fraktflugi hefur aukist í heiminum.

Ekki er enn vitað hvenær nákvæmlega flugvöllurinn verður tekinn í notkun en kínverskir fjölmiðlar nefna að dagsetningin verði í júní í sumar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga