flugfréttir

Prófunum lokið á þriðju flugbrautinni í Hong Kong

22. apríl 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:34

Þriðja flugbrautin á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong verður opnuð síðar á þessu ári

Chek Lap Kok flugvöllurinn í Hong Kong hefur færst skrefi nær því að taka í notkun þriðju flugbraut vallarins.

Flugprófunum lauk á dögunum og segir flugvöllurinn að um hornstein sé að ræða og styttist í að þriðja flugbrautin verði opnuð þar sem hún stenst allar kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).

Uppfærðar upplýsingar um þriðju flugbrautina hafa verið gefnar út til flugrekstaraðila um allan heim svo þau verði tilbúin þegar flugbrautin opnar en stefnt er á að opna flugbrautina síðar á þessu ári.

HKIA, flugrekstaraðili flugvallarins í Hong Kong, vinnur nú að því að leggja lokahönd á þau atriði sem þarf að klára í samstarfi við flugmálayfirvöld í Hong Kong áður en brautin verður tekin í notkun.

Framkvæmdir við þriðju flugbrautina hófust árið 2016 en ákveðið var að leggja nýja flugbraut vegna þeirra gríðarlegu aukningu sem hafði orðið á farþegaflugi til og frá Hong Kong.

Þrátt fyrir þetta þá hefur farþegaflug legið að mestu niðri um flugvöllinn í Hong Kong vegna heimsfaraldursins en þess má geta að í mars fóru aðeins 94.000 farþegar um flugvöllinn samanborið við 6.4 milljónir farþega í mars árið 2019.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga