flugfréttir

Jetblue með nýtt tilboð í Spirit

- Spirit skoðar tilboð Jetblue í annað sinn og samruni Frontier aftur í óvissu

17. maí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Jetblue og Frontier Airlines slást nú um yfirtöku á rekstri Spirit Airlines

Bandaríska lágfargjaldafélagið Spirit Airlines hefur ekki endanlega útilokað yfirtökutilboð Jetblue en félagið hefur komið með annað tilboð í félagið og hefur Spirit Airlines ákveðið að fara yfir það tilboð og tekur fram að í þetta sinn munu hluthafar ekki koma að ákvörðuninni fyrst um sinn.

Í febrúar höfðu Spirit Airlines og Frontier Airlines ákveðið að sameina félögin eftir að Frontier kom með tilboð í Spirit en það var í byrjun apríl sem að JetBlue kom með óvænt tilboð í félagið og þurfti stjórn Spirit Airlines að leggjast undir feld og skoða það tilboð sem sett samrunann við Frontier Airlines í óvissu.

Tæpum mánuði síðar í byrjun maí tilkynnti Spirit Airlines að félagið hefði ákveðið að halda sig við áform sín um að sameinast Frontier Airlines en nú þremur vikum síðar kemur JetBlue með annað tilboð.

Spirit Airlines segir að í þetta skipti ætli félagið að fá aðstoð frá ráðgjafarfyrirtækjum og lögfræðingum og verður vandlega skoðað hver sé besti kosturinn í stöðunni bæði fyrir flugfélagið og hluthafa.

Núverandi tilboð JetBlue hljómar upp á 3.3 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar 439 milljörðum króna sem er 600 milljónum dala lægra tilboð en fyrra tilboðið í apríl sem hljómaði upp á 3.6 milljarða dali.

Tilboðið er samt veglegra en tilboð Frontier Airlines að því leyti að tilboð Frontier hefur lækkað á grundvelli þess að hluturinn hefur rýrnað á verðbréfamörkuðum.

Gert er ráð fyrir því að hluthafar í Spirit Airlines muni kjósa um tilboð Frontier Airlines þann 10. júní næstkomandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga