flugfréttir

Herða flugöryggi í Nepal í kjölfar flugslyss í lok maí

7. júní 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:33

Twin Otter flugvél frá nepalska flugfélaginu Tara Air

Flugmálayfirvöld í Nepal hafa ákveðið að herða flugöryggi og boðað til aðgerða er kemur að flugstarfsemi í vafasömu veðri og takmörkuðu skyggni í kjölfar flugslyss sem átti sér stað þann 29. maí síðastliðinn.

Um er að ræða flugslys er flugvél af gerðinni Twin Otter frá nepalska flugfélaginu Tara Air fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Pokhara með 19 farþega og þriggja manna áhöfn um borð en flugvélin brotlenti í fjalllendi á leið sinni til Jomsom-flugvallarins.

Nepölsk flugmálayfirvöld gáfu þann 31. maí út yfirlýsingu þar sem fram kemur að flugfélög og flugrekstaraðilar verði að hætta við flug þegar kemur að vafasömu veðri.

Í yfirlýsingu segir að þegar kemur að því að leggja inn flugáætlun fyrir brottför þá verði flugrekstaraðili að tilgreina veður á áfangastað og á fyrirhugaðri flugleið og verði flugumferðarstjórar og flugþjónustuaðilar að samþykkja veðurupplýsingar áður en leyfi er gefið fyrir brottför.

Þá er verið að skoða möguleikann á því að taka upp skyldu um að tveir flugmenn sé um borð í flugvélartegund sem hingað til hefur flogið undir reglugerð sem kveður á um að einn flugmaður nægi fyrir slíka tegund.

Sérstök fimm manna nefnd hefur verið falið það verkefni að leggja mat á skyldu um tvo flugmenn um borð og er áætlað að nefndin muni skila frá sér greinargerð á næstu dögum.

Frumrannsókn á flugslysinu þann 29. maí bendir til þess orsök flugslyssins megi að mestu rekja til veðurs en slysið var það mannskæðasta á þessari flugleið en árið 2016 fórst önnur Twin Otter flugvél frá Tara Air á leið frá Pokhara til Jansom með þeim afleiðingum að 20 farþegar létust og þriggja manna áhöfn.

Þá átti sér stað enn annað slysið hjá Tara Air árið 2010 er Twin Otter flugvél brotlenti í fjallshlíð á leið sinni frá Lamidanda til Kathmandu og létust þá 19 farþegar og þriggja manna áhöfn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga