flugfréttir

IATA: Bjart framundan fyrir flugfélögin

- Flugiðnaðurinn mun ná sömu tölum og fyrir covid á næsta ári

20. júní 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:51

Willie Walsh, yfirmaður Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA)

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa gefið út endurgerða fjárhagsspá fyrir flugfélögin þar sem talið er að afkoma flugfélaganna verði betri eftir heimsfaraldurinn en gert var ráð fyrir í upphafi auk þess sem flugið og bataferlið er að gerast hraðar en talið var áður.

Willie Walsh, formaður IATA, telur að flugiðnaðurinn verði komin í sama horf á næsta ári og telur hann að tap flugfélaganna vegna kórónaveirufaraldursins verði um 9.7 milljarðar bandaríkjadalir lægri í stað 11.6 milljarða eins og gert var ráð fyrir árið 2021 og er tapið því um 10 milljörðum dala minna ef litið er á heildartöluna í fyrri spám.

IATA spárir því að tekjur flugfélaganna á þessu ári muni ná 782 milljörðum dala sem samsvarar 102 þúsund milljörðum króna sem er 93% af þeim tekjum sem flugfélögin í heiminum tóku inn árið 2019, árið fyrir faraldurinn og á sama tíma er gert ráð fyrir að farþegafjöldinn í heiminum á þessu ári muni ná 3.8 milljörðum.

IATA sér fram á að einu flugfélögin sem eiga eftir að ná fram hagnaði á þessu ári séu flugfélögin í Norður-Ameríku en það mun skiptast í fylkingar milli þeirra flugfélaga sem ná fram hagnaði í Evrópu í ár og það sama má segja varðandi flugfélögin í Asíu.

„Flugfélögin er að sækja í sig veðrið mjög hratt. Fólk er að fljúga á fullu og tölurnar lofa frábærum árangri og fraktflugið er að gera það mjög gott þrátt fyrir óvissutíma í efnahagsheiminum“, segir Walsh sem segir að það er komin tími til að vera bjartsýn þrátt fyrir breytingar og hátt eldsneytisverð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga