flugfréttir
JetBlue gefst ekki upp og kemur með enn annað tilboðið í Spirit
- Veglegra tilboð á síðustu stundu áður en hluthafar kjósa um Frontier
Flugvélar Spirit Airlines og JetBlue Airways
JetBlue Airways hefur komið með enn annað tilboðið í Spirit Airlines og kemur tilboðið á síðustu stundu áður en hluthafar Spirit Airlines kjósa um fyrirhugaðan samruna félagsins við Frontier Airlines.
JetBlue Airways kom í gær með enn veglegra tilboð auk þess sem félagið býðst til að greiða
hluta af yfirtökutilboðinu fyrir fram og þá býðst félagið einnig til þess að fella niður
riftunargjald upp á 400 milljónir dali sem þýðir að ef Spirit Airlines tekur tilboðinu þá þarf félagið
ekki að greiða bætur ef það hættir við tilboðið eftir að samningur hefur verið undirritaður.
Hluthafar munu kjósa um fyrirhugaðan samruna við Frontier Airlines þann 30. júní næstkomandi
en JetBlue hefur lýst því yfir að félagið ætli sér ekki að gefast upp á þeim forsendum að tilboð
þeirra sé einfaldlega margfalt betra en tilboð Frontier.
„Eftir að stjórn Spirit Airlines láðist að viðurkenna okkar tilboð sem var með yfirburðum betra þá
ákváðum við að hefja viðræður beint við hlutafa félagsins og erum núna að laga tilboðið til og
endurbæta það með von um aukinn áhuga frá þeim og það gerum við með því að bjóða þeim meðal annars mánaðarlegar
greiðslur“, segir Robin Hayes, framkvæmdarstjóri JetBlue.
Hays segir að hluthafar eigi ekki skilið að stjórn Spirit Airlines og Frontier Airlines sé að blekkja þá
með tölfræði um mögulegan hagnað sem felur ekki í sér sviptingar í kostnaði á borð við
hærri launakröfur meðal flugmanna og hækkandi verð á þotueldsneyti.
Yfirtökustríðið á milli JetBlue og Frontier Airlines hefur staðið yfir frá því í febrúar á þessu ári eða
frá því að tilkynnt var um samruna félaganna tveggja og hefur JetBlue nokkrum sinnum komið
með tilboð sem Spirit Airlines hefur tvisvar skoðað ítarlega en á endanum fallist á að halda
áfram sínu striki hvað varðar samrunann við Frontier.
Bæði Frontier Airlines og JetBlue hafa hækkað yfirtökutilboðin sín á víxl til þess að ná athygli
hluthafa Spirit Airlines. Fundurinn, sem fram fer þann 30. júní, var áætlaður fyrr í þessum mánuði
en Spirit Airlines ákvað að fresta honum þar sem stjórn flugfélagsins sagðist þurfa betri tíma til
þess að fara yfir tilboðið frá Jetblue.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.