flugfréttir
Vara við að verkfall flugmanna SAS geti haft gríðarleg áhrif
Verkfallsaðgerðir flugmanna SAS hófust í dag
Stjórn SAS varar við verkfallsaðgerðum meðal flugmanna og segir flugfélagið að þessar aðgerðir séu mjög vanhugsaðar og eigi eftir að ógna afkomu SAS.
SAS náði ekki að semja við flugmenn félagsins í tæk tíð og hafa allar samningaviðræður farið
út um þúfur. Talið er að verkall flugmanna SAS eigi eftir að bitna á um 30.000 farþegum sem eiga
bókað flug með félaginu og það daglega.
Síðastliðnar vikur og mánuði hefur SAS verið að reyna að halda í nýja rekstaráætlun félagsins sem
kallast SAS Forward í kjölfar áhrifanna af heimsfaraldrinum og segir félagið að verkfallsaðgerðirnar
eigi eftir að hafa áhrif á þau markmið.
„Verkfall á þessum tímapunkti er eiginlega hrikalegt fyrir rekstur SAS og er framtíð félagsins
og fjöldi starfa í húfi“, segir Anko van der Werff, yfirmaður SAS.
Segir hann að þessi ákvörðun endurspegli kærulausa hegðun meðal flugmannafélagsins og sýni
hversu lítinn skilning þeir hafa á þá viðkvæmu stöðu sem SAS hefur verið í að undanförnu.
Þá kemur fram að ef verkfallsaðgerðirnar eigi eftir að dragast á langinn muni það hafa mikil á
fjárhagsstöðu félagsins og vill stjórn SAS halda viðræðum áfram til að leysa stöðuna sem fyrst.
Rekstartap SAS á fyrri helmingi seinasta fjármálaárs, sem endaði þann 30. apríl síðastliðinn, nam 26 milljörðum króna og taprekstur fyrir skatta nam 51 milljarði króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.