flugfréttir

Framleiðsluafköstin á 737 MAX komin í 31 þotu á mánuði

13. júlí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:55

Boeing 737 MAX þotur við verksmiðjur Boeing í Renton

Boeing segir að framleiðsluafköstin við smíði Boeing 737 MAX þotnanna sé komin upp í 31 þotu á mánuði auk þess sem framleiðandinn afhenti 51 þotu af þessari gerð í síðasta mánuði og hafa eins margar 737 MAX þotur ekki verið afhentar síðan í mars árið 2019.

Boeing segir að framleiðsluafköstin séu þó misjöfn á milli mánaða en varðandi þá 51 þotu sem afhent var í júní þá séu meðtaldar þær þotur sem búið var að framleiða og átti eftir að afhenda.

Boeing segir að nú sé að komast á stöðugleiki í framleiðslunni bæði hvað varðar starfsmannamál og stöðu hjá birgjum en upphaflega stóð til að ná framleiðsluafsköstum upp á 31 þotu í byrjun þessa árs.

Í lok júní stóð pöntunarlistinn hjá Boeing í 4.239 þotum sem á eftir að framleiða og hafði sá listi lengst um 237 þotur frá því í maí þegar listinn taldi 4.192 þotur.

Í júni afhenti Boeing einnig sjö breiðþotur. Tvær Boeing 767 fraktþotur sem fóru til Air Canada, eina Boeing 767F þotu sem fór til FexEx, tvær Boeing 777F þotur til franska fyrirtækisins CMA CGM og eina 777F fraktþotu sem fór til Emirates.

Engar Boeing 747-8 þotur né Dreamliner-þotur voru afhentar í júní en hlé hefur verið á afhendingum á Boeing 787 þotum sl. 21 mánuði vegna vandamála í framleiðslu.

Þá var hætt við pantanir í 35 þotur í júní sem samastendur af sex Boeing 787-9 þotum og 29 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX.

Þau flugfélög sem hættu við pantanir eru Avianca, WestJet, Norwegian og Aerolineas Argentinas.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga