flugfréttir
IAG staðfestir pöntun í 37 þotur úr A320neo fjölskyldunni
Airbus A321neo þota frá British Airways
Flugfélagasamsteypan IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur lagt inn pöntun til Airbus í 37 þotur úr A320neo fjölskyldunni.
Kaupsamningur vegna pöntunarinnar var undirritaður í dag og er um að ræða kauprétt
sem IAG tryggði sér í ágúst árið 2013 þegar fyrirtækið lagði inn pötnun í allt að 220 þotur
frá Airbus og er því nú búið að breyta þeim kauprétti í staðfesta pöntun og hefur IAG
einnig tryggt sér kauprétt á 50 þotum til viðbótar.
Í yfirlýsingu frá IAG kemur fram að ekki séu enn búið að ákveða hvert hlutfallið verður
á milli Airbus A320neo og A321neo en þoturnar verða afhentar á milli áranna 2025 og 2028.
Þess má geta að IAG hafði einnig breytt öðrum kauprétti í maí á þessu ári yfir í staðfesta pöntun
og var þá um að ræða tvær Airbus A321neo þotur og sex þotur af gerðinni A320neo
og verða þær flugvélar afhentar frá árinu 2024 til 2025.
Þá hafði IAG í maí á þessu ári gert samkomulag við Boeing um kaup á 150 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX en 25 af þeim þotum verða af gerðinni Boeing 737 MAX 10 og tuttugu og fimm af gerðinni 737 MAX 8 200.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.