flugfréttir
Takmarka farmiðasölu á stuttum flugleiðum frá Heathrow
Flugvélar British Airways á Heathrow-flugvelli
British Airways hefur takmarkað sölu á farmiðum á styttum flugleiðum til og frá Heathrow-flugvellinum í að minnsta kosti eina viku til þess að létta á því álagi sem hefur verið á Heathrow í sumar.
Heathrow-flugvöllur tilkynnti um miðjan júlí takmarkanir á flugumferð og hefur síðan
þá verið reynt að setja skorður á fjölda brottfararfarþega sem miðast við 100.000 farþega á dag
en af þeim eru langflestir að ferðast með British Airways.
British Airways segir að takmarkanir á fjölda seldra farmiða á stuttum flugleiðum verði í gildi
að minnsta kosti til 8. ágúst en samkvæmt nýjustu tölfræði hefur British Airways gert ráð
fyrir að fljúga um 11.000 flug í ágúst sem flokkast sem stuttar flugleiðir en annasömustu
áfangastaðirnir í þeim flokki eru Glasgow, Edinborg, Dublin, Genf, Amsterdam, Aþena og Róm.
Luis Gallego, formaður IAG, móðurfélags British Airways, sagði á dögunum að hann vonast
til þess að ástandið muni skána fyrir lok ársins en tók fram að það þurfi samt samvinnu
fleiri flugfélaga til svo að ástandið verði betra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.