flugfréttir
Júmbó-þota losnaði af dráttarbíl og rann á trukk og grindverk
Atvikið átti sér stað á Ted Stevens flugvellinum í Anchorage í Alaska sl. mánudag
Júmbó-fraktþota af gerðinni Boeing 747 frá Korean Air rann af stæði á Ted Stevens flugvellinum í Anchorage í Alaska í vikunni og hafnaði á kyrrstæðum flutninagabíl frá FedEx.
Atvikið átti sér stað sl. mánudag og kemur fram að flugvallarstarfsmenn hafi verið að færa
vélina þegar hún losnaði af dráttabíl sem var að draga hana með þeim afleiðingum að hún
fór að renna til.
„Það endaði með því að hún klessti á annað ökutæki sem hafði verið lagt við grindverkið“, segir
Aaron Danielson, yfirmaður slökkviliðsins á Ted Stevens flugvellinum, og tekur hann fram að engan hafi sakað.
Danielson segir að nefhjól þotunnar hafi ýtt FedEx-bílnum að grindverkinu og varð því bæði
tjón á ökutækinu og grindverkinu.
Þotan lenti í Anchorage sl. laugardag eftir fraktflug frá Seoul í Suður-Kóreu en til stóð að hún myndi fljúga næst til Chicago á þriðjudeginum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.