flugfréttir

Sex þotur hjá airBaltic kyrrsettar vegna skorts á varahlutum

4. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 09:06

Airbus A220-300 þotur frá airBaltic

Ein af hverjum sex Airbus A220 þotum í flota flugfélagsins airBaltic eru kyrrsettar vegna skorts á varahlutum.

AirBaltic hefur 36 þotur af gerðinni Airbus A220-300 í flota sínum og eru sex af þeim kyrrsettar þar sem erfiðlega hefur gengið að fá varahlutir í þær.

„Eins og staðan er núna þá hefur birgðarstaða á varahlutum neytt okkur til þess að kyrrsetja sex þotur þar sem okkur vantar varahluti við reglubundna skoðun“, segir Martin Gauss, framkvæmdarstjóri air Baltic.

Gauss tekur fram að sumar ef þessum þotum hafi verið úr umferð í sex mánuði og segir hann að mjög sjaldgæft að svo langur tími líður sem að flugvél er úr umferð vegna skorts á varahlutum.

Eftir að fólk fór að bóka flug á ný eftir heimsfaraldurinn hefur eftirspurn eftir varahlutum í flugvélar aukist til muna og vandamál hjá birgjum hefur orðið til þess tafir hafa orðið á framleiðsla á varahlutum að sögn franska flugfyrirtækisins Safran.

„Ef ég á að segja eins og er þá held ég að vandamál hjá birgjum eigi eftir að vara fram á næsta ár og jafnvel fram til lok ársins 2023“, segir Olivier Andries hjá Safran.

Til þess að bregðast við vandamálinu hefur airBaltic m.a. tekið á leigu flugvélar frá úkraínska flugfélaginu Ukrainian International Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga