flugfréttir

Alliance í Ástralíu selur allar Fokker 50 flotann

8. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Fokker 50 flugvél frá Alliance Aviation

Ástralska flugfyrirtækið Alliance Aviation hefur hætt með allar Fokker 50 flugvélarnar fimm og hafa þær að auki þess verið seldar og afhentar til nýrra eigenda.

Með þessu líkur 15 ára starfsemi með skrúfuþotum hjá Alliance Aviation sem ætlar sér héðan í frá eingöngu að notast við þotur en fyrirtækið hefur 62 þotur í flotanum af gerðinni Embraer, Fokker 70 og Fokker 100.

Alliance notaði Fokker 50 flugvélarnar í leiguflugi til þess að ferja námuverkamenn fyrir námufyrirtækið BHP milli borgarinnar Adeleide og Ólympíustíflunnar en eftir að Olympic Dam flugvöllurinn gekkst í gegnum endurbætur til að taka við þotum skipti Alliance yfir í að nota þotur í því leiguflugi.

Fokker 50 flugvélarnar fimm voru seldar auk varahluta fyrir rúmlega 1.1 milljarð króna en flugvélarnar, sem eru knúnar áfram með Pratt & Whitney PW125 hreyflum, eru frá 26 til 32 ára gamlar.

Aðeins eru rúmlega sextíu Fokker 50 flugvélar eftir í rekstri í almennu áætlunarflugi í heiminum af þeim 213 sem smíðaðar voru á sínum tíma og eru þær í dag notaðar meðal flugfélaga og fyrirtækja í 10 löndum en þar af eru fimm lönd sem nota þær enn í flughernaði.

Meðal flugfélaga í heiminum sem enn nota Fokker 50 flugvélar í áætlunar- og leiguflugi eru Air Panama, íranska flugfélagið Karun Airlines, Freedom Airlines í Kenýa, Skyward Express í Kenýa og Amapola Flyg í Svíðþjóð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga