flugfréttir
Sjá fram á bjarta tíma á breiðþotumarkaðnum
Air Lease Corporation telur að markaðurinn með breiðþotur fari að taka við sér fljótlega
Bandaríski flugvélaleigurisinn Air Lease Corporation segist vera bjartsýnn á að að markaðurinn með breiðþotur fari að taka við sér fljótlega og segir fyrirtækið að nú þegar séu merki um að líf sé að glæðast á breiðþotumarkaðnum.
John Plueger, framkvæmdarstjóri Air Lease, segir að eftirspurn eftir farþegaþotum
haldi áfram að aukast í kjölfar heimsfaraldursins og að kippur í eftirspurn
í langflugi milli fjarlægra áfangastaða fari að auka eftirspurn eftir breiðþotum á ný.
Air Lease á von á tæplega 50 breiðþotum á næstu fjórum árum en þar á meðal mun fyrirtækið fá 24 Dreamliner-þotur frá Boeing, sextán Airbus A330neo breiðþotur, sjö Airbus A350 þotur og tvær A350F fraktþotur.
Plueger segir að flugfélög séu að panta nýjar flugvélar í gegnum flugvélaleiguna með afhendingar sem nái
fram til ársins 2027 og þá fer framlengingum á leigusamningum fjölgandi á ný
bæði er kemur að minni og meðalstórum flugvélum og einnig er kemur að breiðþotum.
Þótt að Air Lease segir að fyrirtækið hafi náð að afhenda fleiri flugvélar á seinni
ársfjórðungi þessa árs þá sé von á því að seinkanir verði yfir nokkurra mánaða skeið
á næstunni á afhendingum vegna tafa hjá birgjum.
Air Lease hefur í dag 392 flugvélar í sinni eigu miðað við tölfræði frá því í lok júní en þá á fyrirtækið von á 430 nýjum flugvélum til ársins 2028.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.