flugfréttir

Yfir 200 flugmönnum verður sagt upp hjá Volga-Dnepr

11. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 12:32

Antonov An-124 fraktþota frá flugfélaginu Volga-Dnepr

Rússneska flugfélagið Volga-Dnepr mun á næstunni segja upp yfir 200 flugmönnum sem starfa hjá félaginu og þar á meðal þeim flugmönnum sem starfa hjá dótturfélögunum AirBridgeCargo og Atran.

Ástæðan er sögð vera vegna stefnu Volga-Dnepr um að hætta tímabundið að fljúga vestrænum þotum sem framleiddar eru meðal annars af Boeing og fengu flugmennirnir skilaboð varðandi uppsögnina í lok júlímánaðar.

Volga-Dnepr ætlar að hætta með allar vestrænar flugvélar og fjarlægja þær úr flotanum og verða því eingöngu eftir flugvélar af gerðinni Antonov An-124 og Ilyushin Il-76.

AirBridgeCargo hefur haft sextán Boeing 747 fraktflugvélar í flotanum auk einnar fraktþotu af gerðinni Boeing 777 og þá hefur Atran níu Boeing 737 fraktflugvélar.

Leiðarkerfi Volga-Dnepr samanstóð nær eingöngu af áfangastöðum í öðrum löndum utan Rússlands og sama má segja með leiðarkerfi dótturfélaganna og hefur viðskiptabann á hendur Rússa því haft gríðarlega áhrif á starfsemi flugfélaganna.

AirBridgeCargo byrjaði að skila Boeing 747 fraktþotunum aftur til eigenda sinna í mars á þessu ári eða einum mánuði eftir að innrásin í Úkraínu hófst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga