flugfréttir
Telja að Boeing 737 MAX 10 fái vottun árið 2023
- 737 MAX 7 fær sennilega flughæfnisvottun fyrir lok þessa árs
Boeing 737 MAX 10 tilraunarþota í Renton í mars árið 2020
Boeing segist eiga von á því að Boeing 737 MAX 10 þotan fái flughæfnisvottun á fyrri árshelmingi næsta árs og geti afhendingar hafist fljótlega í kjölfarið.
Þetta þýðir að minnsta útgáfan af 737 MAX þotunni, Boeing 737 MAX 7, á sennilega eftir að koma á markaðinn
á undan stærstu útgáfunni , Boeing 737 MAX 10.
Boeing telur að 737 MAX 7 geti mögulega fengið flughæfnisvottun rétt fyrir lok þessa árs en ekki er von á
að 737 MAX 10 fái vottun á þessu ári og eru bundnar vonir um að það eigi sér stað á fyrr helmingi ársins 2023.
Upphaflega stóð til að afhendingar á 737 MAX 7 myndu hefjast árið 2019 og átti Southwest Airlines
að taka við fyrstu þotunni en þotan flaug sitt fyrsta flug í mars árið 2018.
Varðandi Boeing 737 MAX 10 þá var vonast til að flughæfnisvottun yrði gefin út á þessu ári en bandarísk
flugmálayfirvöld (FAA) lýstu í sumar yfir áhyggjum sínum varðandi atriði sem Boeing hefur ekki náð að uppfylla í tæka
tíð og er því ekki gert ráð fyrir að þotan fái vottun á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.