flugfréttir

Fá leyfi frá Rússum til að skila tveimur 737 MAX þotum

7. september 2022

|

Frétt skrifuð kl. 11:44

Boeing 737 MAX þota í litum rússneska flugfélagsins S7 Airlines

Stjórnvöld í Rússlandi hafa gefið fyrirtækinu S7 Group leyfi til þess að skila tveimur Boeing 737 MAX til eigenda sinna en þoturnar voru í flota dótturfélagsins S7 Airlines.

Nokkrar flugvélaleigur hafa reynt að ná til baka þeim flugvélum sem hafa verið í leigu í flota rússneskra flugfélaga eftir að viðskiptaþvingarnir voru settar á Rússa í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu en mörg fyrirtækjana hafa gefið upp von um að fá flugvélarnar aftur og hafa nokkrar flugvélaleigur afskrifað virði flugvélanna.

Ríkisstjórn Rússlands hefur gefið út nokkur skilyrði fyrir því ef flugfélög í landinu ætla sér að skila flugvélum til eigenda sinna og þarf að fá samþykki frá sérstakri nefnd sé óskað eftir því.

Flugfélagið S7 Airlines hafði tvær Boeing 737 MAX 8 þotur í flotanum sem báðar hafa verið skráðar í Bermúda og áframleigðar til rússneska fyrirtækisins Globus í Novosibirsk.

S7 Airlines var fyrsta rússneska flugfélagið til þess að fá Boeing 737 MAX þoturnar afhentar og tók félagið þær á leigu frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease í október árið 2018.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga