flugfréttir

United íhugar að hætta öllu flugi um JFK í New York

- Fá ekki úthlutað varanlegum afgreiðsluplássum

7. september 2022

|

Frétt skrifuð kl. 22:12

Boeing 777 þota frá United Airlines í lendingu á JFK-flugvellinum í New York

United Airlines hefur varað við því að flugfélagið gæti hætt öllu áætlunarflugi um John F. Kennedy flugvöllinn í New York í lok október vegna skorts á varanlegum afgreiðsluplássum á flugvellinum.

United Airlines sendi frá sér skilaboð til starfsmanna sinna í gær þar sem fram kemur að stjórn félagsins íhugi að draga sig til hlés á New York JFK og væri það þá mjög erfið ákvörðun ef af því verður.

Það yrði þó ekki í fyrsta skiptið sem United Airlines hættir öllu flugi um JFK-flugvöllinn en árið 2015 hætti félagið að nota flugvöllinn og færði allt millilandaflug yfir á Newark-flugvöllinn í New Jersey.

Í febrúar árið 2021, þegar kórónaveirufaraldurinn var í hæstu hæðum, fékk United Airlines úthlutað tímabundnum plássum sem önnur flugfélög höfðu til afnota en í dag, þegar eftirspurnin er öll að koma til baka, hefur United Airlines átt í erfiðleikum með að fá varanleg afgreiðslupláss.

„Án varanlegra plássa þá getum við ekki þjónað JFK-flugvellinum og erfiðlega mun ganga að gera flugáætlanir fram í tímann og halda í samkeppnina við önnur flugfélög“, segir í tilkynningu.

United Airlines hefur ítrekað sent beiðni til bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) um að fá úthlutað varanlegum plássum á New York JFK en án árangurs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga