flugfréttir

EASA skoðar nýja tækni varðandi óáreiðanlegan flughraða

9. september 2022

|

Frétt skrifuð kl. 09:51

Þegar misræmi verður á hraðamælum veldur það oftast því að sjálfstýringin aftengist auk sjálfvirku eldsneytisinngjafarinnar („autothrust“) og flugbeinis (“flight director”)

Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) vinna nú að því að meta hvort hægt sé að innleiða tækni á stórum flugvélum sem myndi ná að tryggja að hægt sé að viðhalda flugleiðsögn þrátt fyrir að upp komi aðstæður þar sem flughraði er óáreiðanlegur.

Þegar misræmi verður á hraðamælum veldur það oftast því að sjálfstýringin aftengist auk sjálfvirku eldsneytisinngjafarinnar („autothrust“) og flugbeinis (“flight director”).

EASA hefur meðal annars verið að skoða kerfi sem hefði þrjá stillimöguleika en einn af þeim er sjálfvirk endurtenging á sjálfstýringu og sjálfvirkri eldsneytisinngjöf sem myndi tryggja að flugvélin myndi viðhalda hæð og stöðugu afli ef upp kemur sú staða að upplýsingar um flughraða liggja ekki fyrir eða sýna fram á misræmi.

Einn möguleikinn myndi samt sem áður ekki ganga upp þar sem upplýsingar um flughraða verða að vera til staðar ef sjálfstýringin og eldsneytisinngjöfin á að geta farið aftur í gang til að uppfylla kröfur stofnunarinnar um virknina.

EASA hefur gengið skrefinu lengra til að finna milliveg með tækni sem myndi ná að tryggja öryggi flugvélarinnar og væri lausnin fólgin í því að viðeigandi búnaður myndi geta tryggt að flugvélin sé í öruggum flugham þrátt fyrir að óvíst sé hver flughraði hennar er.

Þá kemur fram að huga þarf að þáttum sem taka mið af því með hvaða hætti flugmennirnir myndu grípa inn í svo að samspilið milli þeirra aðgerða og kerfisins myndi ekki skarast og þarf því að huga að viðbótarþjálfun er snýr að því.

Aðrir möguleikar eru að koma fram með kerfi sem viðheldur sjálfstýringunni, sjálfvirku eldsneytisinngjöfinni og flugbeini sem myndi annaðhvort reiða sig á upplýsingar frá einum flughraðamæli eða styðjast við varaupplýsingar um flughraða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga