flugfréttir
Semja við flugmenn og koma í veg fyrir verkfall
- Flugmenn hjá Lufthansa lofa verkfallslausum vetri fram á næsta sumar

Flugfloti Lufthansa
Lufthansa hefur náð samkomulagi við flugmenn félagsins um launakjör og með því náð að koma í veg fyrir verkfallsaðgerðir að minnsta kosti fram til 30. júní á næsta ári.
Þeir flugmenn, sem eru meðlimir í starfsmannafélaginu Vereinigung Cockpit, höfðu lýst því yfir að þeir myndu leggja niður störf sín frá og með 7. september og var bæði
um að ræða flugmenn hjá Lufthansa og Lufthansa Cargo.
Í kjölfar viðræðna sem fram hafa farið undanfarna daga hefur verið samþykkt að flugmenn
fái launahækkanir í tveimur skrefum sem ná aftur í tímann til ágústmánaðar og fram
til 1. apríl á næsta ári.
Þá hafa flugmenn heitið því að „halda friðinn“ og gefið loforð um að ekki verða neinar
verkfallsaðgerðir fram til 30. júní 2023.
Michael Niggemann, starfsmannastjóri Lufthansa, segir að það ríki mikil ánægja að niðurstaða hafi náðst við Vereinigung Cockpit og segir hann að flugfélagið ætli að nota næstu mánuði í enn frekari viðræður við starfsmannafélagið til að koma á varanlegri lausn í kjaramálum.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.