flugfréttir

Stutt hlé reglulega gert á framleiðslu á 737 MAX

19. september 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:32

Frá samsetningarsal Boeing í Renton

Boeing hefur reglulega þurft að grípa til þess ráðs að gera stutt hlé á framleiðslu á Boeing 737 MAX þotunum vegna skorts á íhlutum hjá birgjum.

„Ef við fáum íhlut sem er gallaður eða hefur einhverja annmarka eða fáum ekki íhlut í tæka tíð frá framleiðanda þá þurfum við að gera hlé í framleiðslunni hjá okkur“, segir David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, sem tekur fram að þetta sé nýtt fyrirbæri sem framleiðandinn hefur ekki staðið frammi fyrir áður.

Calhoun segist gera ráð fyrir að stutt hlé á framleiðslu eigi eftir að eiga sér stað áfram þangað til að Boeing hætti að fá íhluti sem eru gallaðir eða vegna skorts á íhlutum.

Vandamálið er aðallega rakið til áhrifa af heimsfaraldrinum og er Boeing ekki eina fyrirtækið sem glímir við framleiðsluvanda vegna faraldursins.

Calhoun tekur fram að Boeing mun ekki auka framleiðsluafköst sín á meðan vandamálið er til staðar og nefnir hann að það kemur reglulega fyrir að nauðsynlegt er að gera stutt hlé og situr starfsfólk í verksmiðjunni auðum höndum klukkutímum saman.

Þá nefnir Calhoun að sum fyrirtæki sem framleiða fyrir birgja hafi orðið gjaldþrota í heimsfaraldrinum og þá hafi birgjar verið að glíma við vandamál er kemur að óreyndu starfsfólki og skorts á starfsfólki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga