flugfréttir
Air New Zealand flýgur sitt fyrsta flug til New York

Dreamliner-þotan í aðflugi að JFK flugvellinum í New York sl. laugardag
Nýsjálenska flugfélagið Air New Zealand hefur hafið áætlunarflug til New York og flaug félagið sl. laugardag sitt fyrsta áætlunarflug á John F. Kennedy flugvöllinn.
Flugið er það lengsta fyrir Air New Zealand og 5. lengsta áætlunarflug heims á eftir
fluginu sem Qantas flýgur frá Melbourne til Dallas og flugi Emirates frá Dubai til Auckland.
Fyrsta flugið til New York var flogið með Dreamliner-þotu af gerðinni Boeing 787-9 og fór
þotan í loftið frá flugvellinum í Auckland klukkan 4:08 að staðartíma og lenti á JFK-flugvelli sextán klukkutímum síðar eftir 14.000 kílómetra langa flugleið.
Air New Zealand mun fljúga frá Auckland til New York þrisvar sinnum í viku en upphaflega
stóð til að hefja þetta flug árið 2020 en hætt var við þau áform vegna heimsfaraldursins.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.