flugfréttir

Þrjár risaþotur til viðbótar munu hefja sig til flugs næsta sumar

31. október 2022

|

Frétt skrifuð kl. 08:44

Ein af Airbus A380 risaþotum Lufthansa í langtímageymslu

Lufthansa stefnir á að duska rykið af fleiri Airbus A380 risaþotum og hefur flugfélagið þýska eyrnarmerkt þrjár risaþotur til viðbótar fyrir sumartraffíkina árið 2023 sem verða staðsettar á flugvellinum í Munchen.

„Þetta er bara byrjunin þar sem við eigum von á því að taka til baka fleiri risaþotur þar sem eftirspurning er að aukast töluvert auk þess sem ástæðan er af rekstarlegum toga“, segir Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa.

Lufthansa á von á því að eftirspurn eftir farþegaflugi eigi eftir að halda áfram að aukast á næsta ári og einnig í langflugi til fjarlægra áfangastaða en fram kemur að bókanir fyrir næsta ár eru mjög stöðugar þrátt fyrir efnhagslega óvissu í heiminum.

Lufthansa setti allar risaþoturnar fjórtán í langtímageymslu snemma við upphaf heimsfaraldursins og sá flugfélagið ekki fram á að þurfa að nota þær nærri því strax ekki nema að eftirspurnin kæmi til baka fljótlega og það af krafti.

Fyrr á þessu ári gaf Lufthansa í skyn að flugfélagið myndi sækja einhverjar risaþotur úr geymslu og koma þeim í umferð án þess að tilgreina nákvæmlega hversu margar risaþotur ættu afturkvæmt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga