flugfréttir

Virgin sækist eftir fleiri plássum á London Heathrow

4. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:40

Airbus A350 breiðþota Virgin Atlantic í flugtaki á Heathrow-flugvellinum í London

Breska flugfélagið Virgin Atlantic sækist eftir því að fá fleiri lendingarpláss á Heathrow-flugvellinum í London á næstunni en félagið hætti í heimsfaraldrinum að fljúga um Gatwick-flugvöllinn og hefur félagið með því sparað sér rúma 50 milljarða króna á ári.

Virgin ætlar þrátt fyrir það að halda í lendingarplássin sín á Gatwick-flugvellinum ef félagið fær ekki úthlutað fleiri plássum á London Heathrow.

Shai Weiss, framkvæmdarstjóri Virgin Atlantic, segir að flugfélagið eigi von á fleiri flugvélum frá Airbus á næstu árum og eigi floti félagsins eftir að stækka úr 37 þotum í 46 þotur fyrir árið 2025.

Með stærri flota stefnir Virgin á að stækka leiðarkerfið bæði til Bandaríkjanna og Asíu og er einnig verið að skoða fleiri áfangastaði.

Um 70% af leiðarkerfi Virgin í dag samanstendur af áfangastöðum í Bandaríkjunum og í Karíbahafinu en leiðarkerfi félagsins var stærra fyrir heimsfaraldurinn áður en Weiss tók við framkvæmdarstjórastöðunni en hann segir að leiðarkerfið hafi þó samanstandið ef mörgum áfangastöðum sem voru ekki að skila flugfélaginu hagnaði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga