flugfréttir

Qantas sér fram á meiri hagnað og bjartari tíma

23. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 09:57

Boeing 787-9 Dreamliner-þota frá Qantas

Ástralska flugfélagið Qantas sér fram á bjartari tíma og hefur flugfélagið uppfært afkomuspá sína fyrir fyrri helming ársins 2023.

Qantas sér fram á áframhaldandi aukningu í eftirspurn eftir flugi og þá sérstaklega í innanlandsflugi í Ástralíu og sér félagið fram á að hagnaður á fyrri helming næsta árs verði um 185 milljarðar króna en í október sl. sá félagið fram á 137 milljarða króna hagnað fyrir það tímabil.

Þá gerði Qantas ráð fyrir að farþegafjöldinn í innanlandsflugi í Ástralíu myndi ekki ná sömu hæðum og var fyrir heimsfaraldur fyrr en á seinni helming næsta árs og á sama tíma væri farþegafjöldinn í millilandaflugi um 77 prósent af því sem var árið 2019 en gert er ráð fyrir að þessar tölur eigi eftir að nást töluvert fyrr.

Þrátt fyrir þetta hefur eldsneytiskostnaður aldrei verið eins mikill vegna hækkunar á verði á þotueldsneyti en Qantas gerir ráð fyrir að fara með 469 milljarða króna í eldsneyti fyrir árstímabilið frá 30. júní 2022 til 30. júní á næsta ári.

Þá sér flugfélagið fram á að skuldir Qantas eigi eftir að verða allt að 227 milljörðum krónum lægri en fyrri spár gerðu ráð fyrir sem er að mestu tilkomið vegna meiri tekna í tengslum við fjölgun bókanna á fargjöldum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga