flugfréttir

Hvetja 45 ára og eldri til að sækja um flugfreyjustarfið

25. nóvember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:32

EasyJet segir að flugfreyjum og flugþjónum sem eru 45 ára og eldri hafi fjölgað um 27 prósent síðan árið 2018

Breska lágfargjaldafélagið easyJet reynir nú að ráða eins margar flugfreyjur og flugþjóna til sín og hægt er fyrir næsta sumar en flugfélagið hvatti nýlega fólks, sem er komið á miðjan fimmtugsaldur, til þess að sækja um flugfreyjustarfið.

„Aldur er bara tala“, skrifaði easyJet á færslu á fésbókina í gær og óskar flugfélagið eftir að þeir sem eru 45 ára og eldri sendi inn umsókn til flugfélagsins auk fólks sem orðið eitt eftir heima í hreiðrinu.

EasyJet segir að flugfreyjum og flugþjónum sem eru 45 ára og eldri hafi fjölgað um 27 prósent síðan árið 2018 og 30% aukning hafi orðið meðal þeirra sem eru orðnir 60 ára.

„Aldur er bara tala“, skrifaði easyJet á færslu á fésbókinni

„Allar okkar glæsilegu áhafnir sýna vel hversu frábært starf þetta er, sama hversu gamall þú ert og þess vegna viljum við hvetja enn fleira fólk til þess að slást í hópinn“, segir Michael Brown, yfirmaður yfir áhafnardeild easyJet.

EasyJet vitnar í nýlega rannsókn sem gerð var í Bretlandi sem leiddi í ljós að um 78% fólks, sem er orðið 45 ára eða eldra, væri til í að takast á við nýjar áskoranir og skipta um starfsvettvang og sérstaklega þegar börnin eru farin að heiman.

EasyJet birti í október nýja flugáætlun fyrir sumarið 2023 og gerir flugfélagið ráð fyrir að fljúga yfir 250.000 flugferðir næsta sumar með 400 mismunandi flugleiðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga