flugfréttir

Fyrsta fraktþota Icelandair komin í nýju litina

- TF-ISH bætist við fraktflugflota Icelandair Cargo á næstu dögum

28. nóv

|

Frétt skrifuð kl. 17:48

TF-ISH á flugvellinum í Shannon á Írlandi í dag (28. nóvember)

Lokið hefur verið við að mála fyrri fraktbreiðþotu Icelandair sem bætist við í flota Icelandair Cargo en fraktflugvélin, sem er af gerðinni Boeing 767-300ER, var máluð í nýjum litum Icelandair og er hún fyrsta fraktþotan til þess að fara í nýja liti Icelandair.

Þetta er fyrsta breiðþotan sem sinnir fraktflugi eingöngu í flota Icelandair að undanskilinni Boeing 767 þotu sem sinnti fraktflugi með varning í heimsfaraldrinum.

Icelandair Cargo mun síðan á næstunni fá aðra Boeing 767-300ER fraktþotu og verður félagið því með fjórar fraktþotur í flotanum en hingað til hefur flotinn samanstaðið af tveimur fraktþotum af gerðinni Boeing 757-200.

Í tengslum við fleiri fraktflugvélar mun félagið auka umsvif sín og hefja fraktflug t.a.m. til þriggja áfangastaða í Bandaríkjunum sem eru Chicago, New York og Los Angeles.

Flugvélin, sem ber einkennisstafina TF-ISH, var máluð á Shannon á Írlandi og er þotan í eigu Tai I - Aero Two Ltd. á Írlandi en var áður í eigu AerCap sem leigði hana út seinast til TUI Airways.

TF-ISH er 23 ára gömul og var hún upphaflega afhent til Britannia Airways í Bretlandi í febrúar árið 1999. Því næst hefur hún verið í flota Garuda Indonesia, Thomsonfly og Thomson Airways en var ferjuð til Singapore í apríl á þessu ári þar sem henni var breytt í fraktþotu.

Fraktþotubreytingunni lauk í september og var henni síðan flogið til Keflavíkur í gegnum Kairó í Egyptalandi og því næst til Írlands í málun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga