flugfréttir
Airbus hættir að kaupa títaníum af Rússum
- Flókið ferli að finna annan birgja
Mestmegnið af því títaníumi sem Airbus hefur keypt hingað til kemur frá rússneska fyrirtækinu VSMPO-Avisma
Airbus mun hætta að kaupa títaníum af Rússum og mun síðasta sendingin af þessu hráefni berast frá Rússlandi á næstu mánuðum en eftir það mun flugvélaframleiðandinn skipta um birgja.
Michael Schoellhorn, framkvæmdarstjóri Airbus Defense & Space, greindi frá þessu
á ráðstefnunni Airbus Summit 2022 í Munchen í morgun og tók hann fram að ferlið við að
losa sig undan viðskiptum við Rússa væri í fullum gangi.
„Klárlega þá er stefnan hjá okkur að vera ekki lengur háðir rússnesku títaníumi og við
erum í ferli að hætta öllum viðskiptum okkar við Rússa“, segir Schoellhorn sem tekur
fram að slíkt hið sama séu önnur vestræn fyrirtæki einnig að gera sem eru í iðnaði er snýr að varnarmálum.
Schoellhorn tekur fram að það sé hinsvegar frekar flókið ferli að finna nýja birgja og fá vottun á þá vegna þess hversu strangar reglugerðir eru í flugiðnaðinum.
Airbus hafði áður þrýst á Evrópusambandið til þess að gera undanþágu á viðskiptabanninu við Rússa er kemur að rússneskum birgjum með títaníum á þeim forsendum að það gæti haft áhrif á flugvélaiðnaðinn.
Stærsti hluti af því títaníumi sem Airbus kaupir kemur frá fyrirtækinu VSMPO-Avisma sem
er hluti af Rostec samsteypunni.
Schoellhorn segir að innrásin Rússa í Úkraínu hefur gert evrópska framleiðendur tilneydda til þess að endurskoða þá birgja sem þeir versla við og finna leiðir til þess að vera ekki háðir
einum aðila eingöngu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.