flugfréttir

Hlé á prófunum með 777X vegna nýs vanda með GE9X hreyfilinn

6. desember 2022

|

Frétt skrifuð kl. 10:01

Boeing 777X tilraunaþota Boeing

Boeing hefur gert hlé á öllum frekari flugprófunum með Boeing 777-9 tilraunarþoturnar vegna vandamáls sem hefur komið upp með GE9X hreyfilinn frá General Electic.

Bæði Boeing og GE Aerospace hafa hafið rannsókn á vandamálinu en ekki kemur fram hvers eðlis vandamálið er.

Boeing hefur framleitt fjórar Boeing 777 tilraunaþotur en frá því í ágúst hefur aðeins ein tilraunarþota verið notuð í flugprófanir.

Sir Tim Clark, forstjóri Emirates, lýsti því yfir nýlega að galli í GE9X hreyflinum hafi verið vandamál upp á síðkastið.

„Við votum að það kom upp vandamál í október og þeir stöðvuðu flugprófanir þá en ekki það að það hafi verið mikið um prófanir að þeim tímapunkti“, segir Clark sem segist eiga von á því að fá að vita um hvað vandamálið snýst í þessari viku.

Clark telur að ef vandamálið er af alvarlegum toga eigi það eftir að hafa áhrif á vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og fresti vottuninni en Emirates stefnir á að taka við fyrstu Boeing 777X þotuna um mitt árið 2025.

Clark segir að Boeing 777X þotan sé núna 5 árum á eftir áætlun og ef það verður meiri seinkun eigi það virkilega eftir að reyna á þolinmæðina hjá Emirates. „Við erum með flugflota sem er komin á aldur og það þarf að skipta honum út“, segir Clark.

Boeing segir að þeir vinni náið með GE Aerospace á meðan þeir eru að finna út úr vandamálinu og muni flugprófanir halda áfram um leið og viðeigandi aðgerðir og lagfæringar hafa átt sér stað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga