flugfréttir

FAA setur saman nefnd til að rannsaka öryggismál hjá Boeing

9. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 09:12

Höfuðstöðvar Boeing í Chicago

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sett saman sérstaka nefnd sem er ætlað að fara yfir ýmis öryggismál og öryggisstaðla innan Boeing.

Nefndin samanstendur af 24 sérfræðingum og hefur nefndin níu mánuði til þess að skila af sér greinargerð varðandi öryggiskúltúrinn innan veggja Boeing og hvernig öryggismálum er háttað og þeirri eftirfylgni og verkferlum sem notaðir hafa verið.

Að því loknu mun nefndin skila af sér greinargerð með meðmælum til flugvélaframleiðandans en sl. ár hafa komið upp ýmis atvik innan veggja Boeing sem vakið hafa upp spurningar varðandi öryggismál er kemur að framleiðslu á flugvélum og framkvæmdir á flugprófunum.

Í nefndinni eru meðal annars hópar af verkfræðingum og hreyflasérfræðingum frá Pratt & Whitney, GE Aerospace og Gulfstream auk fulltrúa frá nokkrum flugfélögum, verkalýðsfélögum auk sérfræðinga frá FAA og NASA.

Þá eru einnig í nefndinni yfirmenn hjá nokkrum bandarískum flugfélögum á borð við American Airlines, United Airlines og Southwest Airlines.

Upphaflega stóð til að FAA myndi setja saman nefndina og láta hana hefja störf árið 2021 en ekki náðist að láta það verða að veruleika fyrr en þann 5. janúar síðastliðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga