flugfréttir

Boeing 777 þveraði braut á meðan 737 var í flugtaki á sömu braut

- Alvarlegt flugatvik átti sér stað á JFK flugvelli í New York sl. föstudag

16. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 15:07

Skjáskot af Flightradar24.com sem sýnir þoturnar tvær á brautinni á JFK flugvelli í New York

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvik sem átti sér stað á John F. Kennedy flugvellinum í New York er tvær flugvélar voru mjög nálægt því að rekast saman á flugbraut.

Atvikið átti sér stað sl. föstudag (13. janúar) er Boeing 737 þota frá Delta Air Lines fékk flugtaksheimild á braut 4L en á sama tíma var Boeing 777 þota frá American Airlines að þvera brautina sem var á leið til London Heathrow.

Flugmenn þotunnar frá Delta Air Lines náðu með naumindum að hætta við flugtakið og stöðva sig af og staðnæmdsist hún í tæka tíð, stutt frá hinni þotunni, eða í um 1.000 feta fjarlægð.

Þotan frá Delta var á leið til Santo Domingo í Dóminíska lýðveldinu með 145 farþega innanborðs og sex manna áhöfn. Fram kemur að atvikið hefði getað endað með stórslysi og er rannsókn hafin á því.

Boeing 737 þotan frá Delta Air Lines var að hefja flugtak á braut 4L er Boeing 777 þota frá American Airlines var að þvera brautina

Í hljóðupptöku á vefsíðunni LiveATC.net, sem sendir út beint streymi frá nokkrum bandarískum flugvöllum, mátti heyra flugumferðarstjóra kalla: „Shit! Delta 1943 cancel take-off plans!“, og svarar flugstjórinn: „Rejecting“.

Fram kemur að talið sé að flugmenn þotunnar frá American Airlines hafi misskilið fyrirmæli um akstursleiðbeiningar og óvart þverað braut 4L en hafi hann þess í stað átt að þvera braut 31.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga