flugfréttir

Ryanair vonast til að fá allt að 45 MAX þotur fyrir júnílok

- Hraðari framleiðsluferli hjá Boeing gerir Michael O´Leary vongóðan

20. janúar 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Boeing 737 MAX þota í litum Ryanair

Ryanair vonast til þess að fá fleiri Boeing 737 MAX þotur afhentar í kjölfar þess að framför hefur átt sér stað hjá Boeing er varðar framleiðslu og afhendar á þotunum í kjölfar seinkanna á síðasta ári.

Micheal O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, gerir ráð fyrir að Boeing eigi eftir að uppfæra afhendingaráætlun fyrir lágfargjaldafélagið írska á næstunni en Ryanair fékk aðeins tólf Boeing 737 MAX þotur afhentar frá september fram til desember árið 2022 en til stóð að félagið myndi fá 21 þotu afhenta á þessu tímabili.

„Þessar seinkanir sem við urðum var við síðasta sumar og fram á haust hafa minnkað töluvert og ég sé ekki betur en að framleiðslan séu að ná meiri hraða“, segir O´Leary.

Eins og hjá öðrum flugvélaframleiðendum þá má rekja þessar seinkanir vegna skorts á íhlutum hjá byrgjum og skorts á starfsfólki í kjölfar heimsfaraldursins en O´Leary segist trúa því að verulega sé búið að bæta úr þeim málum.

O´Leary telur að vandamálið hafi stafað af vegna fjölda veikinda meðal starfsfólks í verksmiðjum Boeing og bendir hann á að á tímabili þá hafi Boeing „varla náð að koma nýjum flugvélum út úr verksmiðjunni á viðunandi hraða“ þegar verst lét.

Vegna þessa áætlar Ryanair að fá allt að 35 til 40 nýjar Boeing 737 MAX þotur afhentar fram til enda júnímánaðar af þeim 51 sem til stóð að flugfélagið myndi fá frá september í fyrra fram í júní á þessu ári.

O´Leary segir að mögulega gæti flugfélagið fengið frá 40 til 45 en að öðru leyti þá gæti Ryanair ekki tekið við fleirum þotum en það fyrir sumarið þar sem þeir eiga eftir að hafa nóg að gera með að sinna eftirspurninni í sumar.

Þrátt fyrir seinkanir á afhendingum þá náði Boeing samt sem áður takmarki sínu sem var að afhenda 375 Boeing 737 MAX þotur yfir 12 mánaða tímabil að þar að auki þær MAX þotur sem búið var að framleiða og höfðu safnast upp vegna heimsfaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga