flugfréttir

Starfsemi Asia Pacific stöðvað vegna annmarka í þjálfun flugmanna

- Lýst yfir neyðarástandi á Marshall-eyjum vegna skorts á vörum

21. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 18:02

Boeing 757-200 frakþota frá Asia Pacific Airlines á flugvellinum í Honolulu á Hawaii-eyjum

David Kabua, forseti Marshall-eyjanna í Kyrrahafi hefur lýst yfir neyðarástandi á eyjunum vegna skorts á nauðsynlegum vörum eftir að flugfloti flugfélagsins Asia Pacific Airlines var kyrrsettur í febrúar síðastliðnum.

Marshall-eyjar er fjarlægur eyjaklasi í Kyrrahafi og er fraktflugfélagið Asia Pacific Airlines eina flugfélagið sem flýgur til eyjanna með vörur, varning og lyf.

Fram kemur að eftir að starfsemi flugfélagsins var stöðvuð hafa eyjarnar átt í miklum erfiðleikum og er farið að bera á vöruskorti og skorti á öðrum nauðsynjum.

Ríkissjúkrahúsið í borginni Majuro segir að alvarlegur skortur á lyfjum er komin upp og öðrum læknabúnaði og þá hafa íbúar ekki fengið neinar póstsendingar.

Ríkisstjórn eyjanna leitar nú að öðru fraktflugfélagi til þess að sinna eyjunum en flugfélagið Air Marshall Islands sinnir eingöngu innanlandsflugi á milli eyjanna og þá er mjög takmarkað framboð af frakt sem kemur með United Airlines og Nauru Airlines sem fljúga til Majuro og Kwajalein.

Starfsemi Asia Pacific Airlines var stöðvuð í febrúar eftir að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) fundu annmarka er varðar útgáfu á flugskírteinum til flugmanna félagsins og er það mat FAA að enginn af þeim flugmönnum sem flaug hjá félaginu var með réttindi í lagi þar sem þjálfunarfyrirtækið, sem þeir gegnust undir þjálfun hjá reglulega, var ekki með tilskilin leyfi.

Asia Pacific Airlines hefur í flotanum þrjár Boeing 757-200(PCF) þotur og eina Boeing 757-200PF þotu en flugfélagið hóf starfsemi sína árið 1999.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga