flugfréttir
Skortur á þotum hamlar aukin umsvif eftir heimsfaraldurinn
Airbus A350 þota frá Philippine Airlines
Flugfélagið Philippine Airlines segir að erfiðlega gengur fyrir félagið að finna farþegaþotur til að leigja þar sem skortur er orðin á þeim hjá flugvélaleigum.
Philippine Airlines leitar að Airbus A350 og Boeing 777 þotum til þess að anna aukinni eftirspurn sem hefur orðið í
langflugi eftir heimsfaraldurinn en erfiðlega gengur að finna flugvélar þar sem fáar flugvélaleigur hafa slíkar þotur á lausu.
Stanley Ng, rekstrarstjóri Philippine Airlines, segir að þetta sé að hamla auknum umsvifum félagsins sem gæti
að öðru leyti fært út kvíarnar ef það hefði flugkost til þess.
Þá tekur Stanley einnig fram að erfiðlega gengur að fá varahluti í flugflotann en að öðru leyti sé bjart framundan
þar sem flestir markaðir séu að opnast á ný.
„Ef við getum fengið fleiri flugvélar þá getum við aukið umsvifin strax en eins og staðan er í dag
þá getum við það ekki“, segir Stanley sem tekur fram að verið sé að staðfesta pantanir á nýjum
þotum en þær verða þó ekki afhentar fyrr en eftir 2 ár í fyrsta lagi.
Philippine Airlines þurfti að draga verulega saman seglin á meðan á heimsfaraldrinum stóð
og skilaði félagið mörgum þotum aftur til flugvélaleiga en þar á meðal var fjórum af sex Airbus A350-900
þotum skilað og hefur reynst mjög erfitt að fá slíkar þotur aftur.
Þá tekur Stanley fram að ekki sé hægt að festa kaup á Airbus A350 þotum sökum þess hversu dýrt
það yrði og tímafrekt að innrétta þær til þess að þær séu í samræmi við aðrar þotur félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.