flugfréttir
Emirates tekur aftur í notkun Boeing 747 fraktþotur
Boeing 747-400F fraktþota frá Emirates SkyCargo
Emirates ætlar að hefja aftur fraktflug með júmbó-þotum til þess að anna eftirspurn í fraktflugi en félagið ætlar á næstunni að taka á leigu tvær Boeing 747 júmbó-þotur sem fara í flota Emirates SkyCargo.
Sex ár eru síðan að Emirates SkyCargo var seinast með júmbó-þotur í fraktflotanum en félagið hætti með
tvær Boeing 747-400ERF þotur árið 2017 sem félagið leigði frá ASL Airlines Belgium.
Fram kemur að Emirates hafi ákveðið að bæta við júmbó-fraktþotum þar sem félagið sér fram á skyndilega aukningu
í fraktflugi sem hægt verður að sinna á meðan beðið er eftir nýjum fraktþotum en félagið á von á að fá fimm nýjar
Boeing 777F þotum og tíu Boeing 777-300ER/SF þotum.
Boeing 747-400 fraktþoturnar sem Emirates mun fá verða aðallega notaðar í fraktflugi frá Dubai til Chicago og Hong Kong.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.