flugfréttir

Óska eftir að þotur í flota Go First verði teknar af skráningu

- Go First á barmi gjaldþrots og aflýsa enn fleiri flugferðum

9. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 13:01

Airbus A320neo þota frá indverska flugfélaginu Go First

Indverska lágfargjaldarflugfélagið Go First er sagt á barmi gjaldþrots og hefur félagið aflýst enn fleiri flugferðum þar sem að fleiri flugvélaleigur hafa bæst í hóp við þær sem hafa óskað eftir kyrrsetningu flugvéla í flota félagsins.

Þá hafa flugvélaleigur óskað eftir því að flugvélar í þeirra eigu, sem eru í flota Go First, verði afskráðar hjá skráningarstofu með loftförum á Indlandi en félagið óskaði eftir gjaldþrotaskiptum þann 3. maí síðastliðinn.

Go First byrjaði að aflýsa flugferðum þann 2. maí og var flugferðum aflýst fram til 5. maí en núna hefur félagið fellt niður flugferðir fram til 12. maí næstkomandi.

Upphaflega skellti Go First skuldinni á hreyflaframleiðandann Pratt & Whitney og vegna þeirra vandamála sem hafa komið upp með PW1100G hreyflana sem knýja áfram Airbus A320neo þoturnar en félagið hefur neyðst til þess að kyrrsetja tuttugu og fimm slíkar þotur eða helming alls flotans.

Á meðan hafa flugvélaleigur, sem eiga þoturnar, fjölgað beiðnum til flugmálayfirvalda að afskrá flugvélarnar og taka þær af indverskri skráningu og er nú komin beiðni um að afskrá 13 þotur eða tíu Airbus A320neo þotur og þrjár A320 þotur.

Go First var stofnað í nóvember árið 2005 og var flugfélagið 5. stærsta flugfélag Indlands árið 2017 en félagið hafði yfir 150 flugvélar í flotanum þegar mest var.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga