flugfréttir

Ryanair leggur inn risapöntun í allt að 300 Boeing 737 MAX þotur

- Ein stærsta pöntun í sögu Ryanair

10. maí 2023

|

Frétt skrifuð kl. 07:49

Ryanair mun fá fyrstu Boeing 737 MAX 10 þoturnar afhentar árið 2027 og munu afhendingar standa yfir fram til ársins 2034

Ryanair hefur lagt inn til Boeing risapöntun í allt að þrjú hundruð Boeing 737 MAX 10 þotur en pöntunin skiptist niður í staðfesta pöntun í 150 þotur og kauprétt á 150 þotum til viðbótar.

Verðmæti pöntunarinnar samkvæmt listaverði eru 40 milljarðar Bandaríkjadalir eða sem samsvarar 5.515 milljörðum króna en Ryanair segir að um sé að ræða stærstu pöntun sem nokkurt fyrirtæki á Írlandi hefur pantað frá bandarísku fyrirtæki í sögunni.

„Þessar nýju sparneytnu flugvélar bjóða upp á 21% fleiri sæti og brenna 20 prósent minna eldsneyti og eru 50 prósent hljóðlátari en Boeing 737-800 þoturnar“, segir Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair.

Þoturnar munu skapa yfir 10.000 ný störf næsta áratuginn en 737 MAX 10 þoturnar sem Ryanair mun fá taka 228 farþega og mun þær ná að anna þeirri fjölgun farþega sem flugfélagið sér fram á en félagið gerir ráð fyrir að 300 milljónir farþega muni fljúga árlega með Ryanair árið 2034.

Fyrst þoturnar sem tilheyra þessari pöntun verða afhentar árið 2027 og standa afhendingar yfir fram til ársins 2034. Um helmingur flugvélanna eiga að leysa af hólmi eldri flugvélar af gerðinni Boeing 737-800, sem verða teknar úr notkun, á meðan hinn helmingurinn er hluti af stækkun flotans.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga