flugfréttir
Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu
Airbus A320neo þota frá SAS á flugvellinum í Bergen í ágúst í fyrra
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum hafi verið fylgt í því sambandi.
Ríkisstjórnir landanna tveggja settu tæpa 140 milljarða í rekstur SAS í heimsfaraldrinum og þrátt fyrir að
þær aðgerðir fengu samþykki frá Evrópusambandinu á sínum tíma þá var það samþykki afturkallað og gert ógilt
af Evrópudómstólnum í maí á þessu ári.
Endurfjármögnunin samanstóð af 63 milljörðum króna fé sem var sett inn í rekstur félagsins frá sænska og
danska ríkinu auk 75 milljarða króna blöndu af láni og fjárveitingu frá báðum ríkjunum.
Dómstóll Evrópusambandsins komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að þessar fjármögnunaraðgerðir
uppfylltu ekki þau skilyrði sem sett voru sem kveða á um þóknun sem ríkin tvö áttu að fá til baka
auk annarra skilmála er varðar meðferð og endurgreiðslu hlutafjárs.
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins segist ætla að kafa dýpra í málið og skoða gaumgæfilega
hvernig staðið var að endurfjármögnuninni og verður ákvörðun tekin í framhaldinu á næstu mánuðum.
Í yfirlýsingu frá SAS segir að flugfélagið taki jákvætt í að formleg rannsókn sé að hefjast á því hvernig
haldið var á spilunum og ætlar félagið að aðstoða við rannsóknarferlið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.