flugfréttir
Ein af Fokker-vélum Flugfélags Íslands á leið til Kongó
- TF-JMO seld eftir 10 ára flugsögu í innanlandsflugi
TF-JMO nýlent á flugvellinum í Bournemouth í dag til að taka eldsneyti
Ein af Fokker 50 vélum, sem hefur flogið fyrir Flugfélags Íslands, TF-JMO, er nú í þessum rituðu orðum á leið til Kongó í Afríku en vélin var seld til flugrekstraraðila í Kongó í desember.
Hér má sjá ljósmyndir af Fokkernum sem teknar voru er vélin lenti á Bournemouth-flugvellinum
á Englandi til að taka eldsneyti skömmu eftir hádegi í dag en þaðan hélt vélin áleiðis
til Casablanca í Marokkó.
Farþegum með Flugfélagi Íslands hefur fækkað um 30% frá því í Hruninu árið 2008. Árið 2007 voru
farþegar með Flugfélagi Íslands alls 430 þúsund en árið 2013 flugu 307.000 manns með félaginu.
TF-JMO var smíðuð af Fokker-verksmiðjunum í Hollandi árið 1990 en hún var afhent Flugfélagi Íslands árið 2004 ásamt þremur öðrum vélum sem félagið keypti fyrir 350 milljónir króna vegna aukinna umsvifa.
Fleiri myndir sem teknar voru af TF-JMO á Bournemouth (EGHH) í dag
Vélin yfirgefur Bournemouth-flugvöll á leið til Casablanca
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.