flugfréttir
Keflavík með mestu fjölgun flugfarþega á Norðurlöndum
- Keflavíkurflugvöllur sá tíundi stærsti á Norðurlöndum árið 2013
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Hvergi á Norðurlöndunum varð eins mikil fjölgun á flugfarþegum milli ára og á Keflavíkurflugvelli þar sem 15% aukning varð á farþegum árið 2013 m.a.v. árið 2012.
Næstmesta fjölgun á farþegum á Norðurlöndunum var um Rygge-flugvöllinn í Osló
sem sá 9,2 prósent farþegaaukninginu milli ára.
Keflavíkurflugvöllur var tíundi stærsti flugvöllurinn á Norðurlöndunum árið 2013
samkvæmt nýjustu tölum um fjöld farþega.
Næstum helmingur af stærstu flugvöllum Norðurlanda á topp 20 listanum er að finna í Noregi
en níu flugvellir á þeim lista eru að finna þar í landi.
Stærsti flugvöllur Norðurlandanna er Kastrup-flugvöllurinn í Kaupmannahöfn en
24 milljónir farþega fóru um hann árið 2013 sem er 3% hækkun frá því 2012.
Keflavíkurflugvöllur er í 10. sæti en um hann fóru 2,7 milljónir farþega sem er eins og áður
segir 15,6 prósent fleiri en fóru um völlinn árið 2012.
Þrír flugvellir á Norðurlöndunum tóku á móti yfir 20 milljónum farþegum sem er Kastrup-flugvöllur (CPH), Gardermoen í Osló (OSL) og
Arlanda-flugvöllurinn (ARN) í Stokkhólmi.
Svona er listinn í heild sinni yfir stærstu flugvelli Norðurlanda:
1. Kaupmannahöfn - Kastrup (CPH) 24.067.030
2. Osló - Gardermoen (OSL) 22.956.544
3. Stokkhólmur - Arlanda (ARN) 20.681.554
4. Helsinki - Vantaa (HEL) 15.279.043
5. Bergen - Flesland (BGO) 6.213.960
6. Gautaborg - Landvetter (GSE) 5.004.093
7. Stavanger - Sola (SVG) 4.668.403
8. Þrándheimur - Værnes (TRD) 4.311.328
9. Billund (BLL) 2.829.507
10. Reykjavík - Keflavík (KEF) 2.751.743
11. Stokkhólmur - Bromma (BMA) 2.279.501
12. Stokkhólmur - Skavsta (NYO) 2.169.587
13. Malmö (MMX) 2.127.586
14. Tromsø - Langnes (TOS) 1.935.419
15. Osló - Rygge (RYG) 1.890.889
16. Torp - Sandefjord (TRF) 1.856.300
17. Bodø - Langnes (BOO) 1.669.191
18. Álaborg (AAL) 1.422.289
19. Luleå - Langnes (LLA) 1.106.638
20. Álasund (AES) 1.077.209
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.