flugfréttir
Bandaríkin samþykkja sölu á Apache-þyrlum til Íraks

Apache-þyrlan var stoð og stytta bandaríska flughersins í Írak en bráðlega mun flugherinn í Írak fá slíkar þyrlur
Bandaríkjastjórn hefur samþykkt beiðni varnarmálaráðuneytisins um að afhenda sex Apache-orrustuþyrlur af gerðinni Boeing AH-64 yfir til írakska flughersins.
Þyrlurnar mun flugher Íraks leigja frá bandaríska flughernum en þyrlurnar eru hluti af kaupum
á 24 þyrlum til viðbótar sem verða afhentar á næstu þremur árum.
Bandaríski þingmaðurinn Robert Menendez og yfirmaður erlendu samskiptanefndarinnar greiddi
götuna fyrir kaupunum með því skilyrðum að þyrlurnar yrði ekki notaðar gegn óbreyttum
borgurum.
Einnig fylgir í kaupunum varahreyflar, Hellfire-eldflaugar auk ýmissra tækja til hernaðar en með þyrlunum
ásamt þjálfun, varahlutum og fleiru eru viðskiptin metin á 158 milljarða krónur.
Bandaríska þingið samþykkti einnig í síðustu viku sölu á 500 AGM-114K/R Hellfire-eldflaugum
til Íraks vegna endurnýjunnar á eldri hergögnum.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.