flugfréttir
Skip með "Towed Pinger Locator" og kafbátavélmenni leggur af stað í fyrramálið
- Svarti kassinn getur sent frá sér bylgjur í 45 daga - 30 dagar er lágmarkið
Verið er að undirbúa ástralska skipið Ocean Shield til að hefja siglingu í fyrramálið að íslenskum tíma út á leitarsvæðið á Indlandshafi en um borð verður háþróaður staðsetningarbúnaður bandaríska sjóhersins sem er sérhannaður til að finna svarta kassa úr flugvélum.
Tvennskonar tæki verða um borð í skipinu, annars vegar Towed Pinger Locator 25, sem er mjög næmur
búnaður sem notast við hljóðbylgjutækni sem skynjar
eftir hátíðnihljóðbylgjum sem svarti kassinn sendir frá sér og annars vegar neðansjávarkafbátavélmennið Bluefin-21.
Búnaðurinn er í eigu bandaríska sjóhersins og mun sjóliðsforinginn, Mark Matthews, stjórna aðgerðunum
en hann er séfræðingur í sérhæfðum leitaraðgerðum og kom einnig að leitinni að svarta kassa Air France
vélarinnar árið 2009.
Towed Pinger Locator 25 verður sleppt ofan í sjóinn úr Ocean Shield og dregin á 5 kílómetra hraða
en Matthews segir að búnaðurinn muni einungis
greina bylgjur frá svarta kassanum ef hann er innan 1,6 kílómeters radíus frá skipinu.
Greint hefur verið frá því að sívalningslaga hylki í flugritanum sendi bylgjur frá sér í 30 daga eftir flugslys
en Matthews segir að það sé lágmarkstími en af hans reynslu geti svarti kassinn sent frá sér bylgjur í 45 daga þessvegna.
Hvað ef Towed Pinger Locator greinir bylgur frá svarta kassanum?
Ef búnaðurinn skynjar bylgjur frá flugritanum þá verður neðansjávarkafbátavélmennið Bluefin-21 sleppt ofan í sjóinn
sem mun skanna svæðið og taka myndir af aðstæðum sem auðveldar leitarflokkum að átta sig á aðstæðum
á hafsbotni.
Leitin að svarta kassanum er ekki auðvelt verkefni og er 319.000 kílómetra stórt leitarsvæði
sem bíður Ocean Shield þegar það mætir á svæðið en siglingin frá Perth mun taka skipið 3 til 4 daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.