flugfréttir
Tíu flugvélar og tíu skip við leit í dag
Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu, með yfirmönnum herliða allra þeirra landa sem taka þátt í leitinni
Alls hafa tíu flugvélar og 10 skip leitað í dag að ummerkjum eða braki úr malasísku farþegaþotunni sem hvarf af radar fyrir 24 dögum síðan.
Fjórar Orion-vélar frá ástralska, nýsjálenska, japanska og kóreska flughernum taka þátt í leitinni, ein
Ilyushin Il-76 vél frá kínverska flughernum, P8 Poseidon-vél bandaríska flughersins, tvær C-130 Hercules vélar
frá malasíska hernum og tvær einkaþotur.
Ástralska skipið Ocean Shield átti að leggja af stað í dag með sérhæfðan leitarbúnað sem samanstendur
af staðsetningarbúnaðinum Towed Pinger Locator og kafbátavélmenninu Bluefin-21 en brottför skipsins
mun seinka um einhverjar klukkustundir.
Sjóliðsforinginn William Marks sagði í gær í viðtali á CNN að ekki væri hægt að setja búnaðinn
ofan í sjóinn á röngum stað og væri því nauðsynlegt að finna áreiðanlegt brak úr vélinni til að þrengja
svæðið svo hægt sé að hefja aðgerðir með Towed Pinger Locator.
Ástralski flugherinn kom í gær auga á fjóra torkennilega hluti á sjónum sem voru appelsínugulir á lit.
Myndir voru teknar af hlutunum og sent til samhæfingarstöðvar sem stjórnar leitinni
en í ljós að einungis um rusl og veiðarfæri frá skipum var að ræða.
Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu, sagði í gær í beinni útsendingu að Ástralía býr yfir stærsta leitar- og björgunarsvæði
heims og mjög reyndum mannskap á sviði leitar og yrði leitað eins lengi og þörf krefur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.